Ég fer alltaf hér inn á reglulega og finnst frekar sorglegt að við skulum ekki nýta þennan fína miðil betur. Hvernig stendur á því?
posted by Gudrun Vala at 11:31 PM
Haraldur Ólafsson mannfræðingur heldur því fram að setningin ,,Í upphafi var orðið og orðið var hjá Guði" þýði ekki að ,,talað mál" hafi í upphafi verið hjá Guði heldur eigi að vera ,,Í upphafi var regla og reglan var hjá Guði (sbr. andstæða við óregla/óreiða) Sé röng þýðing á ,,orden/order" (regla á norðurlandamálum/ensku). Maðurinn leiti í eðli sínu eftir reglu og hana finnum við hjá Guði. Langsótt? Mér finnst þetta nú eiginlega meika meiri sens en hitt. Hvað um það- þá kíki ég líka mjög oft á síðuna og vil benda ykkur á að nota kommentakerfið (Shout out) líka - !
posted by Gudrun Vala at 3:04 PM
Hér þarf að laga íslensku stafiina í fyrirsögn, koma upp kommentakerfi og teljara. Svo við vitum hvort einhver er að lesa þetta. Framfarafélagið er í það minnsta að koma að hreinsun bæjarins á laugardaginn, svo það hlýtur að vera á lífi.
posted by Gudrun Vala at 11:31 PM
Þá er ég komin inn og ætla að vera dugleg að fylgjast með- og tjá mig- eða þannig.Gott mál þessi Blogger - hef sjálf haldið úti persónulegri dagbók á vefnum í eitt og hálft ár. En þetta með íslensku stafina eða að það sjáist bara rugl fyrir neðan strik - þá þarf að hægri smella með músinni (fyrir neðarn) og velja encoding og svo Western European og þá sést þetta eðlilega.
posted by Gudrun Vala at 9:10 AM